Blogg
10.1.2010
Desember 2009
Hæ hó og gleðilegt nýtt ár!
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur í Desember, fluttum í nýja íbúð, fengum Möggu tengdó (mömmu) í heimsókn, útskrifuðumst og já, eiginlega nutum þess bara að vera í Melbourne að sumri til :)
Fluttum úr þessarri íbúð:

yfir í þessa þar sem Unnar og Elli voru rosa duglegir að setja saman húsgögn

Unnar vann fyrir leigunni á íbúðinni með því að spila á Didgerídú í garðinum

Og svo skelltum við okkur á kvöldmarkað í Victoria Market með KrEl, Heiðu og Freyju

Við stelpurnar skelltum okkur svo á rosalega skemmtilegt djamm á degi sem nú er bara kallaður: "Miðvikudagurinn", fórum í Crown Casino sem er stærsta spilavítið á suðurhvelinu

Svo var Íslendigagrill hjá Auði og Georgi sem eru í tónlistarnámi hérna í Melbourne

Þegar við ætluðum svo að fara að hitta tengdó og fjölskyldu, ákváðum við að bíða ekki eftir þeim úti, heldur elta eitthvað fólk inn í blokkina þar sem þau voru. Föttuðum ekki að án aðgangslykils er ekki hægt að velja hæð í lyftunni, svo við enduðum með því að fara upp á 13 hæð og festast þar. Gátum ekki farið niður með lyftunni. Reyndum því að hringja í tengdó sem var víst farin út að bíða eftir okkur en tók ekki símann sinn með sér. Þ.a.l. þurftum við að taka brunastigann og labba niður haha

Eftir að hafa fundið fjölskylduna voru miklir fagnaðarfundir :)

Svo útskrifaðist Unnar og ég viku seinna

Héldum litlu jólin heima í nýju íbúðinni á Dundas Street, Jólatréð vel skreitt og Verónika og Jóhann Grétar stilltu sér upp við það

Fyrsta matarboðið á Dundas

Magga átti afmæli svo við fórum á japanskan stað til að halda upp á árin hennar

Magga mætti svona í matinn

Neii... bara grín, hún fékk þessi föt sérstaklega hjá veitingastaðnum, af því að hún átti afmæli :)

Svo var haldið til Torquay þar sem við héldum upp á jólin saman

Og jólamaturinn auðvitað:

Svo komum við aftur heim til að halda upp á áramótin, með Krisbjörgu, Ella og Freyju

Gleðilegt ár!!!

Auður að hringja heim: Auður: "Hæ mamma, gleðilegt ár!", Mamma: "Hver er þetta"... haha

Fórum svo á Emilíönu Torrini tónleika ásamt ansi mörgum íslendingum (komumst að því að það er bara allt morandi í íslendingum í Melbourne haha). Tónleikasalurinn var í grískum stíl, alveg rosa flottur.

Jæja, biðjum að heilsa þangað til næst!! Lots of luv!!
Auður og Unnar

Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 33327
Samtals gestir: 17140
Tölur uppfærðar: 9.2.2010 14:49:44